Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2023 | 16:00

LET: Lisa Petterson sigraði á Helsingborg Open

Það var heimakonan, Lisa Petterson, sem sigraði á Helsingborg Open, móti vikunnar á Evrópumótaröð kvenna; Ladies European Tour (skammst.: LET).

Mótið fór fram dagana 2.-4. júní 2023 í Allerum golfklúbbnum í Helsingborg í Svíþjóð.

Sigurskor Petterson var 11 undir pari, 205 högg (70 68 67).

Í 2. sæti varð hin spænska Ana Palaez Trivino, aðeins 1 höggi á eftir.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir var meðal keppenda, en komst því miður ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni; lék fyrstu 2 hringi mótsins á samtals 8 yfir pari 152 höggum (77 75). Niðurskurður miðaðist við 4 yfir pari, eða betra.

Sjá má lokastöðuna á Helsingborg Open með því að SMELLA HÉR: