Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2023 | 19:30

Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!

Íslandsmótinu í golfi lauk í dag á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og Logi Sigurðsson, GS eru Íslandsmeistarar 2023. Þetta er í fyrsta sinn sem þau fagna þessum titli.

Úrslitin réðust á lokaholunni í dag í blíðviðrinu á Urriðavelli að viðstöddum fjölmörgum áhorfendum.

Helstu úrslit í karlaflokki voru eftirfarandi:

1. Logi Sigurðsson, GS 273 högg (69-67-71-66) (-11)
2.Hlynur Geir Hjartarson, GOS 274 högg (70-65-68-71) (-10)
3. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG (69-65-76-67) (-7)

Helstu úrslit í kvennaflokki voru eftirfarandi:

1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 283 högg (70-70-71-71) (-1)
2. -4. Andrea Björg Bergsdóttir, GKG 285 högg (74-71-72-68) (+1).
2.-4. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR 285 högg (76-69-69-71) (+1)
2.-4. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG 285 högg (70-76-67-72) (+1)

Til að sjá lokastöðuna á Íslandsmótinu í golfi 2023 SMELLIÐ HÉR: 

Gríðarlegur áhugi var hjá kylfingum að komast inn á keppendalista Íslandsmótsins. Alls skráðu sig 200 til leiks en aðeins 153 komust inn á keppendalistann.

Alls eru 105 karlar og 48 konur á keppendalistanum.

Aldrei áður hafa jafnmargar konur tekið þátt eða 48 – en í fyrra var nýtt met sett þegar 44 konur tóku þátt á Íslandsmótinu í Vestmannaeyjum.

Golf 1 óskar nýbökuðum Íslandsmeisturum innilega til hamingju!!!

Mynd og texti: GSÍ