Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2024 | 16:27

GSS: Anna Karen og Jóhann Örn klúbbmeistarar 2024

Meistaramót GSS fór fram dagana 1. – 6. júlí á Hlíðarendavelli í frekar hvössu og köldu veðri. Rúmlega 80 þátttakendur tóku þátt í sjö mismunandi flokkum. Keppt var í meistaraflokki karla og kvenna, 1. flokki karla og kvenna, 2. flokki karla, háforgjafarflokki, öldungaflokki, 15 ára og yngri í bæði stelpu og drengjaflokki og að lokum 12 ára og yngri. Í fyrra voru klúbbmeistarar systkinin Arnar Geir Hjartarson og Anna Karen Hjartardóttir en þar sem Arnar tók ekki þátt í ár var ljóst að nýr klúbbmeistari yrði krýndur í karlaflokki þetta árið.

Krakkarnir í barna- og unglingaflokkunum spiluðu á mánudag og þriðjudag og tóku alls 28 krakkar þátt í ár sem er frábært. Þá voru 54 fullorðnir þátttakendur sem léku miðvikudag til laugardags. Fjölmennast var í háforgjafaflokki en þar léku 14 kylfingar sem margir hverjir eru nýbúnir að ljúka nýliðanámskeiði. Keppnin var æsispennandi og voru úrslit í mörgum flokkum ekki að ráðast fyrr en á síðustu holunum á lokadegi. Í meistaraflokki karla enduðu jafnir í 1. sæti Hákon Ingi Rafnsson og Jóhann Örn Bjarkason sem báðir léku á 331 höggi. Einnig voru þeir jafnir í 3. sæti Ingvi Þór Óskarsson og Hlynur Freyr Einarsson sem léku á 336 höggum. Það þurfti því að leika tvo bráðabana til að ná fram lokaúrslitum í öll verðlaunasæti meistaraflokks karla. Það endaði svo að Jóhann Örn Bjarkason sigraði meistaraflokkinn að loknum bráðabana og er hann klúbbmeistari GSS í sjöunda sinn. Áður hefur Jóhann Örn orðið klúbbmeistari árin 2002, 2003, 2004, 2005, 2010 og 2011. Anna Karen Hjartardóttir lék á 324 höggum og sigraði meistaraflokk kvenna örugglega. Anna Karen er klúbbmeistari GSS í fimmta sinn en hún varð fyrst klúbbmeistari árið 2020 og hefur náð að verja titilinn síðan. Lokahóf fullorðinsflokka fór fram á Kaffi Krók á laugardagskvöldið þar sem kylfingar áttu saman góða kvöldstund og verðlaun voru afhent.

Úrslit meistaramóts GSS 2024 í öllum flokkum voru eftirfarandi:

 

Meistaraflokkur karla – 72 holu höggleikur án forgjafar

Jóhann Örn Bjarkason, 331 högg (að loknum bráðabana)
Hákon Ingi Rafnsson, 331 högg
Ingvi Þór Óskarsson, 336 högg (að loknum bráðabana)

 

Meistaraflokkur kvenna – 72 holu höggleikur án forgjafar

Anna Karen Hjartardóttir, 324 högg
Una Karen Guðmundsdóttir, 336 högg
Hildur Heba Einarsdóttir, 346 högg

 

Fyrsti flokkur karla – 72 holu höggleikur án forgjafar

Þórður Ingi Pálmason, 353 högg
Guðmundur Ragnarsson, 356 högg
Hjörtur S. Geirmundsson, 363 högg

 

Fyrsti flokkur kvenna – 72 holu höggleikur án forgjafar

Sylvía Dögg Þórðardóttir, 392 högg
Gígja Rós Bjarnadóttir, 393 högg
Margrét Helga Hallsdóttir, 412 högg

 

Annar flokkur karla – 72 holu höggleikur án forgjafar

Kristinn Brynjólfsson, 403 högg
Pétur Rúnar Birgisson, 502 högg

 

Öldungaflokkur – 27 holu höggleikur með forgjöf

Guðrún Björg Guðmundsdóttir, 118 högg nettó
Ágústa Sigrún Jónsdóttir, 124 högg nettó
Guðmundur Helgi Kristjánsson, 126 högg nettó

 

Háforgjafaflokkur – 27 holu punktakeppni með forgjöf

Hrefna Gerður Björnsdóttir, 66 punktar
Unnar Bjarki Egilsson, 64 punktar
Hera Birgisdóttir, 61 punktur

 

15 ára og yngri drengir – 18 holu höggleikur á rauðum teigum

Ólafur Bjarni Þórðarson, 93 högg
Brynjar Morgan Brynjarsson, 94 högg
Gunnar Atli Þórðarson, 99 högg

 

15 ára og yngri stelpur – 18 holu höggleikur á rauðum teigum

Nína Júlía Þórðardóttir, 112 högg
Nína Morgan Brynjarsdóttir, 114 högg
Elín Björk Friðþjófsdóttir, 145 högg

 

12 ára og yngri (strákar og stelpur) – 9 holu höggleikur á gull teigum

Daníel Smári Kristjánsson, 105 högg
Arnór Tryggvi Friðriksson, 107 högg
Aron Sölvi Arnarsson, 124 högg

Heimild: Feykir