Þrír GKG-ingar fóru holu í höggi í maí-mánuði sl.
Guðmundur Bernhard Jóhannsson, náði draumahögginu á opnunardeginum á Mýrinni 8. maí!
Guðmundur var á 9. braut sem er 125 metra frá teig að pinna. “Það var smá meðvindur og tók því 8 járn og fulla sveiflu af litlu tíi og stefndi boltinn beint á pinna, lenti rétt fyrir framan greenið og skoppaði í átt að holu og rúllaði nokkra metra og beint ofaní!”
Á laugardaginn 11. maí fór Camilla Þóra Þórsdóttir holu i höggi á 2. braut á Mýrinni. Camilla byrjaði í golfi vorið 2020 og er með 28,3 í forgjöf. Í höggið góða notaði Camilla Ping GLE2 sjö járn og lenti boltinn rétt inn á flötinni og rúllaði í fallegum beint í holu!
„Ég ætlaði bara ekki að trúa þessu og var lengi að átta mig á að þetta hefði bara gerst“ sagði Camilla.
Loks á Opnunarmóti Leirdalsins, 16. maí 2024 fór Heiða Hauksdóttir holu í höggi á 17. braut Leirdalsins. Heiða lýsir þessu svona: “Á dauða mínum átti ég fyrr von en að sjá á eftir boltanum í holuna í fyrsta höggi. Eftir að hafa x-að 16. holu, tína boltanum og hætta bara þá hugsaði ég að það dygði sennilega ekki að nota sömu kylfur og ég hætti með í fyrrahaust, yrði að breyta eitthvað taktíkinni þar. Helga sem var með í hollinu mældi fjarlægðina 92 metrar og ég tók hálfvita þristinn minn sló og hugsaði að þetta gæti nú mögulega dugað í mælinu þar sem boltinn fór ekki í bönkerinn. Og vá gleðin þegar við horfðum á eftir boltanum í holuna. Ótrúlegt bara!”
Golf 1 óskar Guðmundi, Camillu og Heiðu innilega til hamingju með draumahöggin og að vera líka gjaldgeng í Einherjaklúbbinn!
Í aðalmyndaglugga f.v.: Guðmundur, Camilla og Heiða.