Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2012 | 08:00

Myndskeið: Tiger vill láta banna magapúttera

Tiger Woods tekur venjulega ekki afstöðu til málefna sem eru umdeild í opinberri umræðu.  Og þó magapútterar (ens. belly putters) séu ekki mikilvægir eða hafi mikla vigt í alþjóðlegri umræðu þá var gaman að heyra Tiger segja hug sinn opinberlega á opinskáan hátt.

Á blaðamannafundi í gær fyrir AT&T Pebble Beach National Pro-Am mótið, sem hefst í dag, var Tiger spurður um hvað honum fyndist um fréttatilkynningu bandaríska golfsambandsins um að endurskoða eigi reglur um magapúttera. Það er mjög sterkt sjónarmið meðal ákveðins hóps í golfheiminum að ekki eigi að leyfa að pota pútterum lengst upp í maga til þess að öðlast stöðugleik í púttum og því eigi að banna slíka púttera.

Myndskeið frá blaðamannafundi með Tiger þar sem hann tjáir sig m.a. um magapúttera má sjá HÉR: 

Tiger Woods
Tiger Woods á blaðamannafundi fyrir  AT&T Pebble Beach

Tiger hefir oft talað um þetta deiluefni við yfirmann R&A, Peter Dawson.  R&A, sem sér um að samhæfia golfreglur í heiminum, hefir lýst sig reiðubúið að endurskoða reglur um (maga)pútterana.

„Ég hef aldrei verið aðdáandi þeirra ” sagði Tiger um magapútterana (ens. belly putters). „Ég trúi því að þetta (að pútta) sé listin að stjórna líkamanum og kylfunni og sveifla henni líkt og pendúl. Ég trúi því að þannig eigi að pútta. Ég er venjufastur (ens. traditionalist) hvað þetta snertir.

„Ég hef talað um þetta við Peter (hjá R&A) í fjölda ára. Hugmynd mín er að pútterinn eigi að vera jafnlangur eða minni en stysta kylfan í pokanum. Og ég held að með því orðalagi ætti að vera hægt að taka fyrir notkun á hverskyns magaakkeríngum.“

Þessu þrætuepli mun ekki verða kyngt niður á næstunni, sérstaklega vegna þess að nokkrir af yngri kylfingunum s.s. eins og Webb Simpson og Keegan Bradley nota magapúttera. Bradley varð fyrsti kylfingurinn til þess að sigra á risamóti með magapútter s.l. ágúst þegar hann vann á  PGA Championship í Atlanta.

Hér má sjá ágætis myndskeið þar sem m.a. er fjallað um muninn á púttum með magapútterum (ens. bellyputters) og pútterum í venjulegri lengd þar sem pútta þarf með miðjun og ritma, eins og pendúll (líkt og Tiger aðhyllist).

SJÁ PÚTT MYNDSKEIÐIÐ HÉR: