Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2012 | 01:30

PGA: Phil Mickelson sigraði á Pebble Beach – hápunktar og högg 4. dags

Það var Phil Mickelson, sem fór með sigur af hólmi í AT&T Pebble Beach National Pro-Am.  Það mátti lesa af svip Tiger að honum var ekki skemmt meðan Phil raðaði inn hverjum fuglinum á fætur öðrum eða bjargaði pari á hringnum. Phil átti glæsihring, einn þann besta í langan tíma, upp á 64 högg!

Phil spilaði skollafrítt, fékk 6 fugla og 1 örn á hringnum. Tiger gekk hins vegar afleitlega var á 75 höggum, heilum 11 höggum á eftir meistara Phil! Samtals var Phil á -17 undir pari, samtals 269 höggum (70 65 70 64) og sigraði í mótinu sem segir en Tiger varð T-15 á 278 höggum (68 68 67 75) og skorið á 4. og síðasta degi mótsins algerlega úr samræmi við gott gengi dagana áður

Í 2. sæti í mótinu varð Charlie Wi frá Suður-Kóreu, 2 höggum á eftir Phil og í 3. sæti varð Rickie Barnes á samtals 273 höggum, 4 höggum á eftir Phil. Í 4. sæti varð svo Ástralinn Aaron Baddeley á samtals 274 höggum og landarnir Kevin Na og Dustin Johnson deildu 5. sæti á samtals 275 höggum

Til þess að sjá úrslit í mótinu smellið HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 4. dags á AT&T Pebble Beach National Pro-Am smellið HÉR: 

Til þess að sjá högg dagsins, sem eru pútt Phil Mickelson á 12. og 15. flöt, smellið HÉR: