Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 19. 2012 | 13:15

Evróputúrinn: Jbe Kruger sigraði á Avantha Masters í Indlandi – myndskeið af hápunktum 4. dags

Jbe Kruger frá Suður-Afríku spilaði 4. hring á Avantha Masters mótinu á 69 höggum og lauk leik í mótinu, sem er samvinnuverkefni Evrópu- og Asíutúrsins á samtals – 14 undir pari, samtals 274 höggum (70 69 66 69).  Þetta er fyrsti sigur Jbe á Evrópumótaröðinni. Hann var með 1 höggs forystu fyrir lokahringinn en jók forystu sína í 2 högg sem hann átti á þá sem deildu 2. sætinu Þjóðverjann Marcel Siem (72 71 66 69) og Spánverjann Jorge Campillo (72 71 66 67).

„Það er fargi af mér létt að landa fyrsta sigrinum,“ sagði Jbe eftir sigurinn. „Ætli maður sér að sigra á móti verður að setja púttin niður á lokahringnum en það gerði ég í dag.“

Fyrir sigurinn hlaut Jbe €300.000,- (u.þ.b. 49  milljónir íslenskra króna).

Til þess að sjá úrslitin á Avantha Masters smellið HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta lokadagsins á Avantha Masters á Indlandi smellið HÉR: