Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2012 | 14:00

GGB: Brynjar Sæmundsson mun hafa umsjón með Glanna sumarið 2012

Á svæði Golfklúbbsins Glanna á www.golf.is er eftirfarandi frétt:

„Stjórn Golfklúbbsins Glanna  hefur tekið yfir rekstur golfvallarins Glanna. Búið er að ganga frá samningi við Brynjar Sæmundsson hjá Grastec um umsjón vallarins sumarið 2012. Brynjar er ekki ókunnur staðarháttum á Glanna því hann hefur verið til halds og trausts við undirbúning og rekstur vallarins undanfarin ár. Brynjar tekur alfarið við umsjón vallarins frá vorinu 2012.

Einnig hefur verið samið við Kaffi Munaðarnes um veitingarekstur í skálanum.

Nýtt netfang er komið fyrir golfklúbbinn ggbgolf@gmail.com.

Stefnt er að opnun vallarins  í lok mai ef veður og tíðarfar leyfir.“