Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 26. 2012 | 18:15

EPD: Stefán Már og Þórður Rafn hafa lokið 1. hring á El Maaden Classic í Marrakesh

Í dag hófst í Marrakesh í Marokkó, Al Maaden Classic mótið sem er hluti af þýsku EPD-mótaröðinni. Mótið stendur dagana 26.-28. febrúar n.k.  Stefán Már Stefánsson, GR og Þórður Rafn Gissurarson, GR, eru á meðal keppenda.

Stefán Már kom í hús á 72 höggum, þ.e. á parinu. Hann fékk frábæran örn á 1. braut, en því miður líka 3 skolla og svo 1 fugl á 7. braut.  Stefán Már deilir 31. sæti ásamt 11 öðrum kylfingum.

Þórður Rafn Gissurarson spilaði á +2 yfir pari, 74 höggum. Hann fékk tvo fugla, en líka tvo skolla og skelfilega skramba á 10. braut. Eftir 1. hring deilir  Þórður Rafn 54. sæti ásamt 13 öðrum kylfingum.

Í efsta sæti á mótinu eru Bandaríkjamaðurinn Scott Travers og Þjóðverjinn Marcel Haremza en báðir komu inn á glæsilegu skori,-7 undir pari,  65 höggum.  Þess mætti geta að ekki öllum tókst að ljúka leik og gæti því ofangreindar niðurstöður raskast aðeins, en þær gera það ekki fyrr en á morgun þegar leik verður fram haldið.

Golf 1 óskar Stefáni Má og Þórði Rafni góðs gengis á morgun!

Til þess að sjá stöðuna á El Maaden mótinu eftir 1. dag smellið HÉR: