Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2012 | 22:40

PGA: Rory nýr nr. 1 í heiminum – sigraði á Honda Classic

Rory McIlroy, 22 ára, frá Norður-Írlandi er nýr nr. 1 á heimslistanum eftir að hafa sigrað á Honda Classic á PGA National Champions golfvellinum í Flórída núna rétt í þessu. Samtals spilaði Rory á – 12 undir pari, samtals 268 höggum (66 67 66 69).

Tiger átti glæsihring kom í hús á 62 höggum á skollafríum hring þar sem 2 ernir og 4 fuglar litu dagsins ljós. Hann varð í 2. sæti, ásamt Tom Gillis, 2 höggum á eftir Rory.

Nr. 3 í heiminum, Lee Westwood barðist líka eins og ljón og kom inn á 63 höggum og varð í 4. sæti

Fimmta sætinu deildu Charl Schwartzel og Justin Rose á -7 undir pari, hvor.

Til þess að sjá úrslitin á Honda Classic í dag smellið HÉR: