Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2012 | 21:00

Golfvellir á Spáni: í Cádíz nr. 3 – Sherry Golf Jerez

Hér er komið að því að kynna völl, sem kannski er óþarfi að kynna – því  þúsundir Íslendinga hafa prófað hann og kunna að meta hann.  Sherry Golf völlurinn er eiginlega tveir vellir annar 18 holu og hinn par-3 9 holu æfingavöllur, sem fengið hefir mikið hrós þeirra sem prófað hafa. Golfstaðurinn 27-holu er t.a.m. tilvalinn fyrir hjón  eða fjölskyldur þar sem annar/einn aðilinn er forgjafarlægri  og spilar hinn frábæra 18 holu völl, en hin/hitt eru/er að byrja og spila/r 9 holu völlinn. Þarna fá báðir/allir svo sannarlega eitthvað við sitt hæfi.

Sherry Golf klúbbhúsið.

Sherry golfvöllurinn er staðstettur í Jerez de la Frontiera og er eins og nafnið bendir til á miklu Sherry framleiðslusvæði, einu af því besta, ef ekki því besta í heiminum. Nálægðin er mikil við hraðbrautina A-4 sem liggur til höfuðstaðar Andaluciu, Sevilla, en hún er aðeins í tæp 100 metra fjarlægð frá golfvellinum.

Inni í klúbbhúsinu er kalt og notalegt.

Brautirnar á Sherry Golf eru breiðar og flatirnar stórar og öll hönnun tekur mið af ný-bandarískri golfvallarhönnun. Völlurinn er enda hannaður af Stirling & Martin hjá Global Golf Company.  Flestir muna eftir par-4 1. brautinni, sem öll liggur upp í móti og er erfiðari en lítur út á blaði. Hins vegar er hæðarmunur ekki slíkur að völlurinn verði of erfiður – hann er góð blanda af léttum og erfiðum brautum. Vatn kemur nokkuð við sögu t.d. á einkennisholunni sem er par-3 14. brautin.

14. brautin á Sherry Golf.

Völlurinn er sérstakur að því leiti að hann er með þeim lengri af aftari teigum á Spáni, 6572 metrar af hvítum teigum; 6160 metrar af gulum og 4867 metrar af rauðum.

Skoða má völlinn á heimasíðu Sherry Golf með því að smella HÉR: 

Klúbbhúsið fallega kannast margir við og pro-shopið er ágætt.  Hægt er að fá sér snarl á grillinu og við hliðina á klúbbhúsinu, en aðskilið frá því er fínni veitingastaður Torrelaguna, sem oft er leigður út fyrir stærri viðhafnaratburði.

Upplýsingar:

Heimilisfang: Autovia A-4, Jerez-Cádiz, Km 642, Jerez de la Frontera, 11407 Cádiz.

Símanr.: +34 956 088 330

Fax: +34 956 088 331

Tölvupóstfang: info@sherrygolf.com