Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2012 | 09:00

Charley Hull, 15 ára, fær ekki að taka þátt í Curtis Cup… vegna þess að hún vill frekar spila í Kraft Nabisco risamótinu

Svar Englands við Lexi Thompson er  Charley Hull. Leggið nafnið á minnið og munið hvar þið heyrðuð það fyrst – en Golf 1 er fyrsti íslenski golffréttamiðillinn til þess að geta hennar… og það eiga eflaust margar fréttir framtíðarinnar eftir að verða skrifaðar um hana. Charley er nr. 8 á heimslista áhugamanna sem stendur og þykir afburðahæfileikaríkur kylfingur, aðeins 15 ára.

Nú er komið upp leiðindamál vegna þess að Charley er ein 5 áhugamanna sem þegið hefir boð um að spila í Kraft Nabisco risamótinu sem fram fer í Bandaríkjunum, dagana 29. mars- 1. apríl.

Charley Hull.

Breska kvengolfsambandið (Ladies Golf Union, skammst. LGU) er lítið hrifið af ákvörðun Charley og lét hafa eftir sér að þeir sem ekki mættu á æfingu fyrir Curtis Cup nú í lok mars myndu ekki koma til greina í lið Breta&Íra á Curtis Cup, en liðið mætir Bandaríkjamönnum í Nairn. í júní n.k. Ljóst er að Charley kemst ekki á æfinguna.

„Hún verður ekki valin í liðið (þ.e. lið Breta&Íra) sem keppir í Curtis Cup vegna þess að allir kylfingar sem koma til greina í liðið skrifuðu undir samning um að þeir myndu mæta á æfingu í mars og þar sem hún mætir ekki kemur hún ekki til greina við val í liðið“ sagði  Susan Simpson, framkvæmdastjóri LGU. „Við gerðum kylfingunum ljóst að ef þeir tækju ekki þátt í æfingunni myndu þeir ekki spila í mótinu. Þeir skrifuðu undir samning.“

Þær sem m.a. hafa varið ákvörðun Charley um að spila á Kraft Nabisco eru skoski kylfingurinn Catriona Matthew, sem finnst viðbrögð LGU „furðuleg“ og „skammsýn“ og Lynn Kenny, fyrrum skoskur kvenmeistari áhugamanna, sem var á varamannabekk Curtis Cup 2004. „Það er draumur atvinnukylfinga, svo ekki sé talað um áhugamanna, að spila í risamóti. Fjölmiðlar hafa gert þetta að „góð stúlka g. slæm stúlka máli“ og ég vorkenni henni. Vonandi mun almenn skynsemi hafa betur!“

Heimild: HeraldScotland (að hluta)