Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2012 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA Tour: nr. 24 – Vaughn Taylor

Vaughn Taylor varð ásamt 2 öðrum kylfingum (Jarrod Lyle, sem var kynntur í gær og Tommy Biershenk sem kynntur verður á morgun)  í 5. sæti á Q-school PGA Tour í desember s.l. og spilar því á PGA túrnum keppnistímabilið 2012. Vaughn á reyndar afmæli eftir 2 daga en þá verður hann 36 ára. Vaughn Joseph Taylor  fæddist 9. mars 1976 í Roanoke, í Virginíu.

Sem krakki fluttist Vaughn til Georgíu þar sem hann spilaði golf í menntaskóla, Hephzibah High. Vaughn spilaði síðan golf með næststærsta háskóla í Georgíu, Augusta State University  og útskrifaðist þaðan með gráðu í viðskiptafræði (ens. business admisnistration) 1999.  Í dag býr Vaughn enn í Augusta, Georgíu  með eiginkonu sinni, Leot Chen, en nálægt foreldrum sínum. Vaughn og Leot giftu sig 10. desember á s.l. ári.

Vaughn Taylor varð atvinnumaður í golfi 1999. Hann spilaði á fyrstu árum sínum sem atvinnumaður á Hooters og Nationwide túrunum og hlaut þar dýrmæta reynslu áður en hann spilaði fyrsta árið sitt á PGA Tour 2004. Vaughn er því einn af þeim sem varla telst „nýr strákur á PGA Tour“, en var aðeins að endurnýja kortið sitt, þar sem hann náði því ekki eftir öðrum leiðum.

Taylor sigraði 4 sinnum á Hooters 1 sinni á Nationwide Tour og 2 sinnum á PGA Tour, í fyrsta sinn 2004 á Reno-Tahoe Open og síðan varði hann titil sinn í mótinu 2005.  Vaughn Taylor var í Ryder Cup liði Bandaríkjamanna 2006 og hefir efst komist meðal 40 efstu á heimslistanum. Í dag er hann nr. 368 á heimslistanum.

Heimild: PGA Tour og Wikipedia