Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 14. 2012 | 15:00

GH: Fjaraðild og námsmannagjald tekið upp á aukaaðalfundi Golfklúbbs Húsavíkur – Félagar í GH hvattir til að fá vini sína í golfið!

Aukaaðalfundur GH var haldinn í golfskálanum fimmtudaginn 8. mars s.l.

19 félagar voru mættir.

Reikningar klúbbsins voru lagðir fram og voru þeir samþykktir samhljóða.

Gjaldskrárbreyting kom frá stjórn og var hún einnig samþykkt samhljóða. Gjaldskrá er hægt að skoða hérna.

Nýtt í gjaldskrá er  fjaraðild og námsmannagjald.

Einnig var samþykkt að hafa skápaleigu 5.000.- fyrir allar stærðir skápa. Rafmagn verður lagt í vestastagáminn og rukkað sérstaklega fyrir það. Hurðir verða settar á alla skápa.

Undir liðnum önnur mál voru nokkrar umræður m.a. um inniæfingaaðstöðu og þörf fyrir fjölgun nýliða í GH. Hvetur stjórnin til þess að félagar horfi í kringum sig og athugi hvort þeir eigi vin sem langar að spila golf.

Þá kom fram á fundinum að Sólveig Skúladóttir ætlar að reka sjoppuna í sumar.

Heimild: www.ghgolf.is