Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2012 | 07:30

PGA: Lake Nona vann Tavistock Cup 2012 – Albany lið Tigers í 4. sæti

Tavistock Cup 2012 var sérstakt fyrir þær sakir að Tiger Woods tók þátt í ár. Hann komst í gegnum 2 daga mótsins án þess að ökklinn væri að hrjá hann, sbr. að hann varð að draga sig úr Cadillac Championship vegna ökklans 11. mars s.l. Tiger og spilafélagi hans, Justin Rose, sigruðu sýningarmót, voru á -9 undir pari, 63 höggum á 1. degi í fjórbolta og Tiger var með skor upp á 72 í gær í einstaklingskeppninni.

Fjögur lið kepptu: Albany, lið Tigers (sem hafnaði í 4. og síðasta sæti) Isleworth (2. sæti), Queenwood Golf Club í Ottershaw (3. sæti), Surrey, og Lake Nona sem sigraði 4. árið í röð.

Á lokahringnum var Lake Nona á samtals skori upp á -41 og verður verðlaunabikarinn áfram hjá Lake Nona, sbr. eftirfarandi myndskeið, smellið HÉR:  

Í liði Lake Nona voru: Ben Curtis, Peter Hanson, Graeme McDowell, Retief Goosen, Ross Fisher og Gary Woodland

Til þess að komast á heimasíðu Tavistock Cup 2012 smellið HÉR: 

Til þess að sjá Retief Goosen setja niður fuglapútt á par-5 15. brautinni, smellið HÉR: 

Til þess að sjá frábært chip Tigers á 4. holu, 2. dags Tavistock Cup smellið HÉR: