Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Helgi Snær Björgvinsson – 1. apríl 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Helgi Snær Björgvinsson. Helgi Snær er fæddur 1. apríl 1998 og er því 14 ára í dag. Helgi Snær er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Svo sem hann á ættir til er Helgi Snær snjall kylfingur, því þrátt fyrir ungan aldur er hann kominn með 12,8 í forgjöf og spilaði  á Arionbankamótaröð unglinga s.l. sumar, (sbr. meðfylgjandi mynd, þar sem móðir hans var kaddý). Foreldrar Helga Snæs eru Björgvin Sigurbergsson og Heiðrún Jóhannsdóttir og systir hans er Guðrún Brá Björgvinsdóttir.

Þess mætti geta að í dag er tvöfalt tilefni til hamingjuóska Helga Snæ til handa, því hann fermdist frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í gær.

Hægt er að óska afmæliskylfingnum til hamingju á Facebooksíðu hans hér:

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru:  Maureen Orcutt, f. 1. apríl 1907 – d. 9. janúar 2007;  Dan Pohl, 1. apríl 1955 (57 ára)… og ….