Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2012 | 10:00

Um 300 manns spila golf á 4 golfmótum í dag

Um 300 manns spila golf í 4 golfmótum víðsvegar um land í dag, 7. apríl 2012.

Á Hlíðavelli þeirra Kilismanna, í Mosfellsbæ er haldið innanfélagsmót, sem 65 eru búnir að skrá sig í.

Annað mótið í Gullmótaröð Suðurnesjamanna hjá GS fer fram í dag og eru 94 skráðir þar.

Flestir eru skráðir í Skálamót II hjá GG, til styrktar byggingu nýs golfskála þeirra Grindvíkinga, eða 102 kylfingar.

Loks er á  Þverárvelli í Fljótshlíð haldið Páskámót Hellishóla hjá þeim Víði og Lailu í GÞH og eru 32 skráðir í það mót.

Óljóst er síðan hvort mót fer fram í Vík í Mýrdal en búið var að blása til móthalds hjá GKV, sem þó var háð veðri.

Búast má við að mun fleiri en ofangreindir taki sér kylfu í hönd, t.a.m. á æfingasvæðum eða litla vellinum við Korpu, Sveinkotsvelli Hafnarfirði, í Vestmannaeyjum, að Selsvelli á Flúðum, Svarfhólsvelli á Selfossi, í Kiðjaberginu (völlurinn bara opinn fyrir félagsmenn),  á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysunni eða Setbergsvelli svo nokkrir séu nefndir.