Kristján Þór Einarsson, GK og Nicholls State. Mynd: heimasíða Nicholls State
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2012 | 22:10

Bandaríska háskólagolfið: Kristján Þór lauk leik í 3. sæti á ULM Wallace Jones Invitational

Í dag lauk ULM Wallace Jones Invitational mótinu í Southern Pines Golf Club í Calhoun, Louisiana. Mótið var 2 daga mót og voru 2 hringir spilaði í gær og lokahringurinn í dag. Þátttakendur voru 62 frá 11 háskólum, þ.á.m. Íslendingaliðið í Nicholls State.

Kristján Þór Einarsson, GK og Nicholls State lék á +5 yfir pari, samtals 221 höggi (73 75 73) og varð í 3. sæti. Glæsilegur árangur hjá Kristjáni Þór!

Í mótinu tóku líka þátt Pétur Freyr Pétursson, GR og Andri Þór Björnsson, GR.

Andri þór Björnsson lauk leik á +31 yfir pari, 247 höggum (84 85 78)

Pétur Freyr varð í 59. sæti á samtals +35 yfir pari, 251 höggi (82 80 89).

Lið Nicholls State lauk leik í  10. sæti.

Til þess að sjá úrslitin á ULM Wallace Jones Invitational smellið HÉR: