Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2012 | 21:00

GSÍ skrifar undir áframhaldandi samning við Flugleiðir

Í dag skrifaði forseti GSÍ undir samstarfssamning við Icelandair, en fyrirtækið hefur verið um árabil traustur samstarfsaðili golfsambandsins sem og íþróttahreyfingarinnar í heild.
Samstarf GSÍ og Icelandair byggist á stuðningi við afrekskylfinga sambandsins og verða landsliðsbúningar merktir Icelandair. jafnframt verður Icelandair samstarfsaðili ásamt Vitaferðum á Íslandsmóti 35+ og Íslandsmóti eldri kylfinga.

Frá undirskrift samnings GSÍ og Flugleiða. Mynd: GSÍ.

Í ræðu sinni við þetta tækifæri sagði Birkir Hólm Guðnason forstjóri Icelandair  „að gífurleg aukning hefur orðið á íþróttatengdum ferðalögum á undanförnum árum um allan heim. Á vegum Icelandair ferðast árlega tugir þúsunda farþega vegna íþrótta, bæði sem iðkendur og áhorfendur. Algengustu iðkendaferðir tengjast golfi og skíðaíþróttinni en þegar kemur að áhorfendaferðum er það fótboltinn í Englandi sem nýtur mestra vinsælda. Þá eru hér á landi árlega fjöldamargir leikir og fjölmenn alþjóðleg íþróttamót sem laða að þáttakendur alls staðar að úr heiminum. „Okkar bestu íþróttamenn vekja sömuleiðis mikla athygli fjölmiðla og íþróttaáhugafólks úti í heimi og eru góð kynning á landinu, á sama hátt og fremsta tónlistarfólk okkar, en Icelandair hefur einmitt lagt áherslu á íþróttir og tónlist í styrktarstefnu sinni“.

Heimild: golf.is