Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2012 | 10:30

Leikmenn Liverpool í golf eftir ósigurinn gegn WBA á sunnudaginn

Hópur Liverpool leikmanna fór í golf í gær til þess að endurvekja liðsandann eftir tap á heimavelli s.l. sunnudag gegn WBA (West Bromwich Albion).

Teikning af Mere Golf & Country Club

Luis Suarez, Andy Carroll, Stewart Downing og Luis Enrique spiluðu golf á Mere Golf and Country Club, nálægt Manchester, ásamt Brad Jones, sem er 3. markvörður Liverpool (þ.e. 2. varamarkvörður þeirra). Sjá má heimasíðu Mere HÉR: 

Frá Mere golfvellinum, nálægt Manchester, þar sem nokkrir leikmenn Liverpool spiluðu golf í gær.

Framkvæmdastjóri Liverpool, Kenny Dalglish,var jákvæður eftir leikinn, þar sem Liverpool var með 27 skot á mark WBA, hitti eitt sinn í stöng og tapaði engu að síður  1-0.

„Það er ekki hægt að segja að þetta sé slæmur árangur,“ sagði Dalglish. „Allir leikmennirnir stóðu sig vel. Við erum mjög ánægðir með þá. Maður skapar ekki þau tækifæri sem við sköpuðum eða glundroða í vörn þeirra, nema við séum að gera eitthvað rétt.“

Það féll bara einfaldlega ekki með Liverpool í þetta sinn.

Heimild: Belfast Telegraph