Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2012 | 07:30

Bandaríska háskólagolfið: Ólafur Björn spilaði á 73 höggum á 2. degi Atlantic 10 Championship

Ólafur Björn Loftsson, NK og Charlotte tekur nú þátt í Atlantic 10 Championship, sem fram fer í Heron Bay Golf Club í Coral Springs, Flórída. Þetta er 3 daga mót og stendur dagana 27.-29. apríl 2012.

Ólafur Björn spilaði 1. hring í fyrradag á 72 höggum, þ.e. á sléttu pari og spilaði í gær á 73 höggum.  Samtals hefir Ólafur Björn spilað á +1 yfir pari, 145 höggum (72 73).  Ólafur Björn fór aðeins niður á skortöflunni við að spila á +1 yfir pari í gær – var í 11. sæti eftir 1. dag en deilir nú 16. sæti ásamt 2 öðrum. Ólafur Björn var á 3. besta skori liðs síns, í gær sem fyrri daginn.

Lið Charlotte háskóla deilir nú 2. sætinu ásamt Xavier háskóla.

Golf 1 óskar Ólafi Birni góðs gengis í dag á lokadegi mótsins!

Til þess að sjá stöðuna á Atlantic 10 Championship eftir 2. dag smellið HÉR: