Bill Haas
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 16:00

Hver er kylfingurinn Bill Haas?

Bill Haas er kylfingurinn ungi, 29 ára, sem vann sér inn $11,4 (u.þ.b. 1345 milljónir ísl. króna) í gær þegar hann sigraði á lokamóti FedExCup, Tour Championship í East Lake í Atlanta.

En hver er kylfingurinn Bill Haas?

Bill er af mikilli golffjölskyldu. Hann fæddist  24. maí 1982 í Charlotte, Norður Karólínu og ólst upp í Greer, Suður-Karólínu, sem er úthverfi Greenville.  Hann er sá 3. í fjölskyldu sinni til þess að spila golf með golfliði Wake Forest háskólanum (þar sem Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, er við nám nú og spilar með kvennagolfliði skólans). Hinir tveir í fjölskyldu Bill er faðir hans Jay og föðurbróðir Jerry. Jerry varð reyndar golfþjálfari við Wake Forest. Annar frændi Bill, Bob Goalby sigraði á Mastersmótinu 1968. Bróðir Bill, Jay Jr. hefir leikið á Masters.

Pabbi Bill, Jay Haas, vann á sínum tíma NCAA háskólamótið, 9 mót á PGA-mótaröðinni frá 1978-1993 og hefir 14 sinnum sigrað á Champions Tour.  Í fyrra urðu Bill og Jay fyrstu feðgar í þó nokkurn tíma til að spila samtímis á PGA (það hefir nokkrum sinnum gerst, en er afar sjaldgæft). Saman unnu þeir CVS Charity Classic mótið, árið 2004.

Bill gerðist atvinnukylfingur árið 2004.  Hann var þrívegis first-time All-American, fjórum sinnum All-ACC, tvisvar sinnum ACC kylfingur ársins og nýliði ársins í ACC, 2011.

Á háskólaárum sínum vann hann 10 mót og á lokaári sínu í háskóla 2004 vann hann Haskins verðlaunin, Jack Nicklaus verðlaunin og Ben Hogan verlaunin. Hann setti líka met í NCAA í lægsta skori. Bill Haas var í Walker Cup liði Bandaríkjanna 2003, sem og í 2 Palmer Cup liðum.  Bill hans varð atvinnumaður í golfi 2004.

Bill Haas var fyrst á Nationwide Tour 2005 eftir að honum tókst ekki að vinna sér inn  kortið sitt 2004 á PGA Q-school.  Besti árangur hans á Nationwide túrnum var 2. sætið í Scholarship America Showdown mótinu 2005.

Árið 2005 gekk Bill betur í PGA Q-school, en hann fékk fugl á síðustu 2 holunum og vann sér inn kortið sitt á PGA mótaröðina fyrir árið 2006.  Hann varð 99., 104,, 104. og í 61. sæti á peningalista PGA fyrstu 4 árin á túrnum.

Bill Haas vann sinn fyrsta sigur á PGA í fyrra, 2010, á Bob Hope Classic á La Quinta í Kaliforníu. Pabbi hans vann sama mót 22 árum áður, þ.e. 1988. Aðeins viku fyrir mótið fékk Bill ráð frá föður sínum og frænda Bob Goalby um fótaburð í sveiflu, með þessum líka frábæra árangri.  Bill átti 1 högg á þá Matt Kuchar, Tim Clark og Bubba Watson, sem deildu 2. sætinu.

Bill vann síðan aftur fyrir ári síðan, þ.e. í október 2010 á Viking Classic, þar sem hann átti 3 högg á Michael Annen. Hann lauk 2010 tímabilinu í 20. sæti á peningalistanum – það er nokkuð öruggt hvar á peningalistanum Bill Haas verður í ár – þetta er 200% bæting milli ára!  Með sigri sínum á Tour Championship hækkaði Bill sig líka úr 45. sætinu á heimslistanum í það 20. – þ.e. er í fyrsta sinn kominn meðal 20 bestu kylfinga í heimi – heilum 30 sætum ofar en aumingja Tiger Woods.

Heimild: Wikipedia