Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2012 | 20:00

Golfvellir í Rússlandi (8. grein af 9): Luzhniki Ólympíugolfvöllurinn, Zavidovo golfvöllurinn og Sochi Golf & Spa

Hér í kvöld er komið að því að kynna fyrirhugaða golfvelli og golfstaði eða þá, sem eru í smíðum í Rússlandi.  Þetta er næstsíðasta greinin hér á Golf 1 um golfvelli í Rússlandi, en lokið verður við að kynna golfvellina á morgun með kynningu á einum þeim glæsilegasta Tseleevo golfvellinum, sem Jack Nicklaus hannaði.

Luzhniki Ólympíugolfvöllurinn

Að þeim, sem fyrirhugað er að byggja ber fyrst að nefna golfvöllinn sem bæta á við Luzhniki Olympic Sports Complex. Í Moskvu eru 63 leikvellir og er Luzhniki íþróttaleikvangurinn langstærstur og sá 4. stærsti í Evrópu. Þar fóru Ólympíuleikarnir 1980 fram og líka leikurinn milli Manchester United og Chelsea árið 2008.

Þessi leikvangur er helgaður Ólympíuleikunum og þar sem golfið er orðið ólympíugrein, sem keppa á í 2016, á nú að bæta við 18 holu kepppnisvelli við  Luzhniki íþróttakomplexinn auk par-3, 9 holu æfingavöll.  Thompson, Perret & Lobb, golfvallarhönnuðum var fengið viðfangsefnið 2010.

Upplýsingar:

Heimilisfang: Luzhniki Olympic Sports Complex,

24 Ul. Luzhniki, Moskva, Rússland 119048

Símar: +74957806767, +74957859717

Heimasíða: http://www.luzhniki.ru/

Aðrir fyrirhugaðir golfvellir eru:

Frá Zavidovo golfvellinum í Rússlandi

Golf Club Zavidovo PGA National Rússlandi

Í Zavidovo golfstaðnum er fyrirhugað að taka í notkun 18 holu fullkominn PGA keppnisvöll og par-3 9 holu æfingavöll. Um hönnunina sá European Golf Design course.  Golf Club Zavidovo PGA National Rússland mun opna nýtt klúbbhús sitt og 9 holu golfvöllinn fyrir félaga sína í júní 2012 og er fyrirhugað að opna að öllu leyti í september 2012.  Þetta er fyrsti og eini golfvöllur Rússlands, sem ber hið virta heiti PGA National.  Golfvellirnir eru staðsettir í  Tver svæðinu í Rússlandi, á bökkum Ivankovskoye uppistöðulónsins rétt hjá ánni Volgu í um 130 km fjarlægð frá Moskvu.

Frá Zavidovo golfvellinum.

Heimilisfang: Golf Club Zavidovo PGA National Russia, Zavidovo, Tver, Russia, 214

Sími: +7 985 920 5558

Til þess að komast á heimasíðu Zavidovo golfvallarins smellið HÉR: 

 

Sochi Golf & Spa

Hér að lokum er vert að geta Sochi Golf & Spa Resort.  Verið er að byggja 18 holu keppnisgolfvöll í Sochi og hafa Peter Dye og sonur hans PB fengið það hlutverk að hanna hann, ásamt Bobby Weed og NBB Developments.  Á þessum fyrsta flokks verðandi golfstað er verið að byggja  hótel, verslunarmiðstöð (Mall), veitingastaði, diskótek, tónlistarhallir, tennisvelli og sundlaugar.  Golfvöllurinn er í Sochi, aðalferðamannastað Rússlands umlukinn Svartahafinu, Kákasus-fjöllum og Sochi þjóðgarðinum.   Fyrirhugað er að völlurinn opni á næsta ári 2013.