Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ólöf Ásta Farestveit – 17. maí 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Ólöf Ásta Farestveit. Ólöf Ásta er fædd 17. maí 1969 og er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hún hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum með góðum árangri m.a. á Opna Lancôme mótinu á Hellu 6. maí s.l.

Ólöf Ásta að slá á Opna Lancôme mótinu 6. maí s.l.           Mynd: Golf 1.

Ólöf Ásta er gift Þráni Bj.Farestveit.  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með daginn:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Tim Sluiter 17. maí 1979 (33 ára); Hunter Mahan 17. maí 1982, núverandi heimsmeistari í holukeppni (30 ára stórafmæli!!!) og  Tinna Jóhannsdóttir, 17. maí 1986 (26 ára).

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is