Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: – Peter Tomasulo 22. október 2011

Peter Tomasulo fæddist 22. október 1980 í Long Beach, Kaliforníu og er því 31 árs í dag. Peter var í University of Californía og árið 2004 var hann tilnefndur first team All-American og var fyrirliði sigurliðs University of Californias í NCAA. Árið 2003 setti hann skólamet í lægsta meðaltalsskori 70.98 og spilaði í Palmer Cup liði Bandaríkjanna, sem tapaði fyrir liði Evrópu 14-10.

Tomasulo gerðist atvinnukylfingur árið 2004. Árið 2005 spilaði hann á kanadíska túrnum og Nationwide Tour og vann 1 skipti og hvorri mótaröð. Hann vann Montreal Open á kanadíska túrnum og Alberta Classic á Nationwide.

Hann sigraði einnig á heimaslóðum og vann á Long Beach Open. Árið 2005 var eina árið sem hann spilaði á kanadíska túrnum því hann hélt áfram að spila á Nationwide til 2008.  Árið 2008 urðu 7 topp-10 árangrar til þess að hann vann sér inn $296,704 og var í 11. sæti á peningalistanum. Efstu 25 á peningalista Nationwide fengu kortin sín á PGA og þannig spilaði hann 2009 á PGA túrnum. Hann átti í vandræðum fyrst náði aðeins 5 sinnum niðurskurði í 25 mótum sem hann tók þátt í og missti kortið sitt.

Hann spilaði því aftur á Nationwide 2010 og sigraði í Ford Wayne Gretzky Classic í júlí.  Það ár varð hann 23. á peningalistanum og spilaði því þetta þ.e. 2011 keppnistímabilð á PGA.  Peter hlýtur ekki kortið sitt vegna góðrar frammistöðu á peningalista PGA í ár, en hann er sem stendur í 208. sæti og lítur því út fyrir að hann þurfi aftur í Q-school ætli hann sér að spila á PGA.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru Adam Gee, f. 22. október 1980 (31 árs); Þórður Ingi Jónsson, 22. október 1988.

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is