Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2011 | 14:00

Viðtalið: Rúnar Arnórsson, GK.

Um miðjan maí, þegar allt var að vakna til lífsins þetta herrans ár 2011 fór Golf 1 af stað með að taka viðtöl við íslenska kylfinga, þ.e. leggja fyrir þá nokkrar staðlaðar spurningar, með örlitlum frávikum í hvert sinn.  Hér fer eitt af fyrstu viðtölunum, en viðmælandi er Rúnar Arnórsson, afrekskylfingur, í Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði.

Fullt nafn:  Rúnar Arnórsson

Klúbbur: Golfklúbburinn Keilir (GK), Hafnarfirði.

Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Reykjavík, 11. júní 1992. Svo bjó ég fyrstu 3 árin í Danmörku.

Hvar varstu alinn upp? Í Hafnarfirði.

Fjölskylduaðstæður?  Ég bý heima hjá foreldrum mínum. Ég á eina systur, Signýju og bróður sem er fluttur út.

Hvenær byrjaðir þú í golfi? 9-10 ára.

Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Ég fann kylfur niðri í geymslu, sem bróðir minn átti en hann hafði farið á golfnámskeið. Ég fór með þær út í garð og fór að sveifla og síðan bara tók eitt við af öðru.

Hvað starfar þú? Ég er nemi í Flensborg.

Hvort finnst þér skemmtilegra að spila skógar- eða strandvöll?  Skógarvöll.

Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleikur? Veit ekki alveg – höggleikur.

Uppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi? Hvaleyrin.

Uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum?  Bled í Slóveníu. Hann er bara flottastur.

Hver er sérstæðasti golfvöllur sem þú hefir spilað á og af hverju?  Bled í Slóveníu, af því að hann er uppi í  hlíð í fjalli.

Hvað ertu með í forgjöf? 0,3

Hefir þú verið hjá golfkennara og ef svo er hverjum? Ég hef verið hjá Bjögga (Björgvini Sigurbergssyni) og Sigga Palla (Sigurpáli Geir Sveinssyni).

Rúnar Arnórsson á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnnar uppi á Skaga í vor, 28. maí 2011.

Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? 67 á  Costa Ballena og Leirunni og 66  í Vestmannayeyjum.

Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu?  Að vinna sveitakeppni fullorðna 16 ára fyrir 3 árum.

Hvaða nesti ertu yfirleitt með í pokanum? 2 samlokur 2 banana, einhverja orkustöng, kókómjólk og vatn.

Hefur þú tekið þátt í öðrum íþróttum?  Já, handbolta og fótbolta.

Uppáhaldsmatur? Grænmetisbakan hennar mömmu.

Uppáhaldsdrykkur? Ísköld kókómjólk og vatn.

Uppáhaldstónlist? Ég er alæta á tónlist. Það fer bara eftir stað og stund.

Uppáhaldskvikmynd?  Þær eru margar – það eru nokkrar sem mér finnst rosalega góðar, en sú sem kemur upp í hugann er Gladiator.

Uppáhaldskylfingur kvenkyns og karlkyns? Kvk: Signý Arnórsdóttir. Kk.: Lee Westwood, Tiger  og Bjöggi (Björgvin Sigurbergsson).

Hver er uppáhaldskylfan þín? Það er 3-tréð og 3-járn-ið og svo pútterinn.

Af hverju eru þessar kylfur í uppáhaldi? Ég tel mig geta slegið ágæt högg með þeim og treysti á þær.

Hvað finnst þér best við golfið? Það er alltaf eitthvað nýtt og nýtt sem maður lendir í – Þetta er svo mikið andlegt sport – svo er það útveran  og það að öll fjölskyldan getur verið í þessari íþrótt saman, en pabbi og mamma fylgja okkur Signýju oft á vellinum.

Hvað er í pokanum hjá þér? Nike Dræver; Sasquash 3tré og (5 tré), járn: 3-PW Victory Red Combo, Victory Red wedgar og Titleist Scotty Camron pútter.

Að lokum: Hver eru helstu markmið þín í golfinu? Þau eru óráðin – Ég hef mín markmið, en kýs að halda þeim fyrir mig.