Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2012 | 18:45

Rory McIlroy ergilegur og með kylfukast eftir slakan hring í Wentworth – úr leik

Ergilegur Rory McIlroy henti kylfu sinni á jörðina eftir hring fullan af skollum á opnunarhring BMW PGA Championship.

Þetta er í fyrsta sinn í 7 mánuði sem Rory spilar í Evrópu og nr. 1 á heimslistanum fékk 5 skolla og skramba á +2 yfir pari 74 högga hring í  Wentworth.

Lægðinni var náð á par-5 12. brautinni þegar Rory henti kylfu sinni frá sér eftir slæmt högg og enduðu ósköpin á því að hann fékk skolla 6u á par-5 una.

„Þetta voru heldur betur vonbrigði,“ sagði Rory, sem er í mikilli hættu á að falla af stalli 1. sætisins á heimslistanum. „mér finnst ég vera að spilavel, ég verð bara að fara þarna út til þess skora.“

En í dag var Rory á 79!!!  79 höggum!!! og…..  er á leið heim…. komst ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni.

Heimild: Fox Sports