Aron Snær Júlíusson, GKG. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2012 | 06:00

Aron Snær Júlíusson sigraði í flokki 15-16 ára drengja á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka á Þverárvelli að Hellishólum

Það var Aron Snær Júlíusson, GKG, sem sigraði í flokki 15-16 ára drengja á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka á Þverárvelli að Hellishólum.  Aron Snær spilaði hringina tvo á +9 yfir pari, samtals 151 höggi (78 73).

Kylfingar í GKG stóðu sig vel í drengjaflokki, því í 2. sæti varð  Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG, og átti GKG því kylfinga í tveimur efstu sætunum hér. Óðinn Þór spilaði jafnt og gott golf, kom í hús á +10 yfir pari, samtals 152 höggum (76 76) og var aðeins 1 höggi á eftir Aroni Snæ.

Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG, varð í 2. sæti á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka. á Þverárvelli, 3. júní 2012. Mynd: Golf 1

Í 3. sæti varð Birgir Björn Magnússon, GK, núverandi Íslandsmeistari í höggleik í flokki 14 ára og yngri.  Hann leiddi eftir fyrri hringinn var á 74 höggum, en spilaði þann seinni í gær á 79 höggum og var því á samtals 153 höggum eða +11 yfir pari.

Birgir Björn Magnússon, GK, varð í 3. sæti á á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka. á Þverárvelli, 3. júní 2012. Mynd: Golf 1.

Í 4. sæti varð síðan Egill Ragnar Gunnarsson, GKG á samtals +12 yfir pari (74 80).

Egill Ragnar Gunnarsson, GKG. Mynd: Golf 1

Í  5. sæti núverandi Íslandsmeistari í holukeppni í flokki 14 ára og yngri, Gísli Sveinbergsson, GK á samtals +14 yfir pari (77 79).

Gísli Sveinbergsson, GK. Mynd: Golf 1

Sjá má úrslitin í drengjaflokki 15-16 ára í heild hér:

Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls
Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 H2 Alls Mismunur
1 Aron Snær Júlíusson GKG 2 F 36 37 73 2 78 73 151 9
2 Óðinn Þór Ríkharðsson GKG 3 F 38 38 76 5 76 76 152 10
3 Birgir Björn Magnússon GK 2 F 39 40 79 8 74 79 153 11
4 Egill Ragnar Gunnarsson GKG 3 F 39 41 80 9 74 80 154 12
5 Gísli Sveinbergsson GK 2 F 42 37 79 8 77 79 156 14
6 Kristófer Orri Þórðarson GKG 4 F 39 37 76 5 81 76 157 15
7 Ernir Sigmundsson GR 5 F 38 40 78 7 80 78 158 16
8 Theodór Ingi Gíslason GR 4 F 41 40 81 10 79 81 160 18
9 Gústaf Orri Bjarkason GK 8 F 43 41 84 13 78 84 162 20
10 Friðrik Berg Sigþórsson GL 7 F 41 41 82 11 81 82 163 21
11 Einar Snær Ásbjörnsson GR 8 F 45 38 83 12 82 83 165 23
12 Birgir Rúnar Steinarsson Busk GOS 9 F 44 41 85 14 80 85 165 23
13 Símon Leví Héðinsson GOS 8 F 45 38 83 12 83 83 166 24
14 Kristinn Reyr Sigurðsson GR 2 F 43 40 83 12 84 83 167 25
15 Ævarr Freyr Birgisson GA 4 F 41 41 82 11 86 82 168 26
16 Björn Óskar Guðjónsson GKJ 11 F 45 47 92 21 77 92 169 27
17 Sigurjón Guðmundsson GKG 10 F 42 38 80 9 89 80 169 27
18 Ottó Axel Bjartmarz GO 9 F 44 39 83 12 86 83 169 27
19 Elís Rúnar Elísson GKJ 8 F 40 41 81 10 88 81 169 27
20 Gunnar Smári Þorsteinsson GR 4 F 47 43 90 19 80 90 170 28
21 Tumi Hrafn Kúld GA 4 F 41 44 85 14 85 85 170 28
22 Albert Garðar Þráinsson GO 15 F 45 41 86 15 85 86 171 29
23 Arnór Tumi Finnsson GB 6 F 45 44 89 18 82 89 171 29
24 Helgi Hjaltason GOS 11 F 46 41 87 16 87 87 174 32
25 Guðjón Helgi Auðunsson GHG 11 F 45 42 87 16 87 87 174 32
26 Einar Valberg Eiríksson GKG 11 F 42 46 88 17 86 88 174 32
27 Arnar Ingi Njarðarson GR 9 F 47 42 89 18 86 89 175 33
28 Bragi Arnarson GKJ 13 F 48 41 89 18 87 89 176 34
29 Elías Fannar Arnarsson GK 12 F 43 44 87 16 89 87 176 34
30 Alexander Pétur Kristjánsson GR 15 F 46 45 91 20 85 91 176 34
31 Vikar Jónasson GK 10 F 44 39 83 12 94 83 177 35
32 Orri Bergmann Valtýsson GK 4 F 45 42 87 16 91 87 178 36
33 Elías Björgvin Sigurðsson GKG 9 F 48 50 98 27 83 98 181 39
34 Ásbjörn Freyr Jónsson GKG 13 F 48 46 94 23 89 94 183 41
35 Alexander Breki Marinósson GK 10 F 46 45 91 20 93 91 184 42
36 Daði Valgeir Jakobsson GKG 10 F 52 47 99 28 85 99 184 42
37 Hilmar Leó Guðmundsson GKG 13 F 51 43 94 23 97 94 191 49
38 Björn Leví Valgeirsson GKG 12 F 54 48 102 31 94 102 196 54
39 Andri Búi Sæbjörnsson GR 13 F 46 55 101 30 96 101 197 55