Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2012 | 19:15

LET: Arthur og André leiða eftir 1. dag Allianz Ladies Slovac Open

Það er Bree Arthur frá Ástralíu og Lucie André frá Frakklandi sem leiða eftir 1. dag Allianz Ladies Slovak Open.  Mótið hófst á golfvelli Gráa Bjarnarins í Tale í Slóvakíu í dag. Arthur og André spiluðu báðar á 3 höggum undir pari, þ.e. 69 höggum.

Þriðja sætinu deilir hópur 7 kylfnga þ.á.m. skoska nýstirnið Carly Booth, sem allur hópurinn spilaði  á 2 höggum undir pari, 70 höggum.

í 10. sæti er enn annar stór hópur kylfinga sem allir spiluðu á 1 höggi undir pari, 71 höggi en þeirra á meðal eru m.a. Gwladys Nocera og Becky Brewerton. 

Aðeins 2 högg sem skilja að kylfinga í 1. sæti og í 20. sæti og því spennandi helgi framundan!

Til þess að sjá úrslit eftir 1. dag Allianz Ladies Slovac Open SMELLIÐ HÉR: