The Clubhouse of GSS (Golfklúbbur Sauðárkróks Skagafirði) in the North of Iceland. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2012 | 22:30

GA: Þórir læknir fór holu í höggi á Króknum

Þórir Vilhjálmur Þórisson, læknir, (GA),  fór holu í höggi á 3.braut, þ.e.  „Veðramótum“ á Hlíðarendavelli í gær, laugardaginn 30.júní 2012. Atburðurinn átti sér stað á Norðurlandsmótaröðinni, en í hollinu með Þóri voru þeir Víðir Steinar Tómasson (GA) og Hjörtur Geirmundsson (GSS).

Þórir ásamt félögum eftir draumahöggið á Króknum!

Draumahöggið kom á 12. holu hringsins sem er 149 metrar og sló Þórir með 6 járni. Boltinn skoppaði einu sinni á flötinni og hvarf síðan. Upphaflega hélt Þórir að kúlan hefði farið yfir flötina og leitaði því þar að henni. Víðir sagðist hins vegar hafa séð hana fara í holuna og athugaði hvort kúlan væri þar, og reyndist svo vera.

Þetta er í fyrsta skipti sem Þórir fer holu í höggi.

Golf 1 óskar Þóri innilega til hamingju með draumahöggið!

Heimild: gagolf.is