Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2012 | 10:00

Webb Simpson og kona hans Dowd eignuðust dóttur sem hlotið hefir nafnið Willow Grace

Sigurvegari Opna bandaríska og gamli Wake Forest stúdentinn (sami háskóli og Ólafía Þórunn stundar nú nám við) Webb Simpson varð faðir s.l. laugardag, 28. júlí,  í 2. sinn.

Eiginkona Webb, Dowd, fæddi stelpukríli, sem þegar hefir hlotið nafnið Willow Grace.

Haft var eftir umboðsmanni Webb Simpson, Thomas Parker, að móður og dóttur heilsaðist vel.

Webb Simpson hætti við þátttöku í Opna breska til þess að geta verið með Dowd síðustu daga meðgöngu.

Búist er við að hann snúi aftur til keppni á PGA Championship risamótinu, sem fram fer á Kiawah Island í Suður-Karólínu, dagana 9.-12. ágúst n.k.

Þeir sem fylgjast með Webb Simpson á Twitter gera sér fljótt grein fyrir að þar fer maður sem er biblían mjög kær, en Webb er trúaður og samskiptin við aðdáendur hans eftir því. Meðal þess sem hann tvítað í gær var að hann tryði ekki hversu mikla blessun hann og fjölskylda hans hefðu hlotið frá Guði með tilkomu Willow Grace.