Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2012 | 09:00

Keiliskonur unnu 3. árið í röð í vinkvennakeppni við Oddskonur

Vinkvennamóti GK og  GO í ár lauk með sigri Keilskvenna. Mótið fer þannig fram að spilaðir eru 1 hringur bæði á Hvaleyrinni í Hafnarfirði (heimavelli Keiliskvenna) og einn hringur á Urriðavelli (heimavelli Oddskvenna). Konur í Keili skrá sig á tilteknum degi keppninnar á rástíma á Urriðavelli og er mælst til að í hverju holli séu konur úr báður klúbbum. Síðan öfugt þegar konur úr Oddi koma að spila á Hvaleyrinni.  Um er að ræða punktakeppni, þar sem 20 efstu punktaskor kvennanna úr hvorum klúbbi telja til sigurs.

Þegar lögð voru saman 20 efstu punktaskor hjá hjá kvenkeppendum beggja klúbba  kom í ljós að  Oddskonur voru með 1227 punkta en Keiliskonur með 1366 punkta. Keiliskonur unnu því þessa keppni því 3ja árið í röð.

Efstu sætin í samanlögðum punktum í báðum mótum voru:

1.       Birna Ágústdóttir GK 75 punktar

2.       Guðrún Erna Guðmundsdóttir GO 71 punktur

3.       Agla Hreiðarsdóttir, GK 70 punktar

4.       Hulda Hermannsdóttir, GK 70 punktar

5.       Björg Baldursdóttir, GK 70 puntktar.

Agla var með flestu punktana samanlagt fyrir seinni 9 í báðum mótum og fékk því verðlaunin fyrir 3ja sætið.

Besta samanlagða skorið átti Anna Jódís Sigurbergsdóttir, GK, 160  högg.

Næstar holu á Hvaleyrarvelli voru:

4. braut – Sigríður Söbeck GO 1.49 m

6. braut  – Anna Snædís  GK 7.0 m

10. braut – Valgerður Torfadóttir GO 0.74 m

16. braut – Elín Harðardóttir GK  5.13 m.