Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 14:00

Glendower golfvöllurinn í Suður-Afríku

Hér á Golf 1 fylgjumst við með Sólskinstúrnum suður-afríska, en margir af heimsins þekktustu kylfingum koma frá þessu einu syðsta ríki Afríku… kylfingar, sem eru í uppáhaldi hjá mörgum hér á norðlægari slóðum.  Nægir þar að nefna menn á borð við Gary Player, Ernie Els, Louis Oosthuizen, Thomas Aiken, James Kingston og Lee Anne Pace.

Nú um helgina lauk BMG Classic mótinu, en 2 ár í röð hefir mótið verið haldið á Glendower golfvellinum nálægt Jóhannesarborg. Tilurð vallarins var sú að árið 1935 (um það leyti sem menn hér heima voru að stofna GR, elsta golfklúbb á Íslandi) tóku 10 bissnessmenn sig saman og keyptu býlið „Glendower” í þeim tilgangi að stofna klúbb. Enskur golfvallararkítekt, Hr. Allison var fenginn til þess að skipuleggja völlinn og suður-afrískur atvinnukylfingur A.F. Tomsett var fenginn til að byggja völlinn. Golfklúbburinn var stofnaður 7. mars 1937.  Þannig voru gæði vinnunnar og hönnunarinnar að aðeins 2 árum eftir stofnunina var haldið stórt mót: The Transvaal Open Championship en sigurvegari mótsins var A.D. Bobby Locke, sem setti heimsmet á 4 hringjum þá, var á skori upp á samtals 265 högg (66 69 66 64).

Brúin á Glendower-golfvellinum líkist annarri frægri brú á golfvelli

Árið 1946 komu 40 atvinnukylfingar frá Suður-Afríku og Rhódesíu og spiluðu í móti upp á 100 pund, sem var mesta verðlaunafé sem sést hafði í móti á þessum slóðum í Suður-Afríku. Árið 1973 var lýst yfir að Glendower væri friðlýst náttúruverndarsvæði, vegna mikils og sérstaks fuglalífs á staðnum.  Á 9. áratug síðustu aldar var allur völlurinn tekinn í gegn og m.a. allar flatir endurnýjaðar og endurbyggðar. Nýjar teigastaðsetningar voru teknar í gagnið og vatnshindrunum bætt við. Við breytingarnar varð völlurinn einn sá fegursti og mest krefjandi í Suður-Afríku. Sem stendur er völlurinn talinn vera sá besti í Gauteng og er talinn meðal 10 bestu í Compleat Golfer. Í Glendower hefir m.a. South African Open verið haldið þrívegis: 1987, 1993 og 1997.  (Sjá úrslit í BMG Classic, haldið á Glendower 2011, hér á Golf 1 – eina golffréttamiðlinum á Íslandi, sem fylgist með golfi í Suður-Afríku!)

Loks má svo komast á heimasíðu Glendower með því að smella HÉR: