Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2012 | 18:20

Nýju stúlkurnar á LET 2012 (8. grein af 34): Dawn M. Shockley

Dawn Shockley er ein 3 stúlkna sem deildu 26. sæti í Q-school LET og hafa því spilað á Evrópumótaröð kvenna keppnistímabilið 2012.

Dawn fæddist í Estes Park, í Colorado, 4. september 1986 og er því 25 ára. Hún gerðist atvinnumaður 1. júní 2009. Hún spilaði fyrst á Futures Tour (sem nú heitir Symetra Tour) og er besti árangur hennar þar 2. sætið á the Santorini Riviera Nayarit Classic mótinu.

Meðal áhugamála hennar eru hjólreiðar, fjallahjól, snjóbretti, tjaldferðir, að elda, líkamsrækt, vín og klifur.

Dawn byrjaði að spila golf 4 ára. Hún segir að móðir hennar og bróðir, D. Horter og M. Miller seú þeir aðilar sem hafi haft mest áhrif á feril hennar.

Shockley var í háskólanum í Denver, Texas þar sem hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu með Denver-liðinu öll 4 árin. Þar varð hún 11 sinnum meðal 10 efstu og vann tvívegis í einstaklingskeppni. Hún er tvöfaldur NCAA Academic All-American selection (2005, 2006); þrefaldur  Sun Belt All-Conference Team selection (2006, 2008, 2009). Hún er medalíuhafi í NCAA East Regional Championship, 2009 og NGCA All-American Honorable Mention selection, sama ár.

Dawn Shockley útskrifaðist með gráðu í landafræði, frá háskólanum í Denver 2009 og gerðist strax að útskrift lokinni atvinnumaður í golfi s.s. áður segir.

Fylgjast má með Shockley á twitter: @dawniedshock