Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2012 | 15:30

GK: Bjarni Þór Hannesson ráðinn vallarstjóri

Staða golfvallarstjóra Keilis var auglýst laus til umsóknar nú á dögunum. Alls sóttu 6 aðilar um starfið og fyrir valinu varð Bjarni Þór Hannesson.

Bjarni hefir víðtæka reynslu á golfvallarsviðinu. Síðastliðin 3 ár hefir Bjarni starfað,  sem vallarstjóri, hjá Golfklúbbi Grindavíkur með eftirtektarverðum árangri, einnig starfaði Bjarni sem vallarstjóri hjá Leyni, Akranesi árin 2002-2003 á meðan hann stundaði nám við Elmwood College í Skotlandi í golfvallarfræðum. Bjarni er eini Íslendingurinn sem hefur náð sér í M.Sc gráðu í Sports Turf Technology en hann stundað nám við Cranfield háskólann, sem hefur verið leiðandi á því sviði, árið 2010. Bjarni hefur starfað erlendis á Sunningdale golfvellinum í Englandi og einnig Nashawtuc Country Club í Bandaríkjunum, sem haldið hafa golfmót á stærstu mótaröðum atvinnumanna.

Einnig eru breytingar á þjálfarateymi Keilis, en Björgvin Sigurbergsson hefir ákveðið að minnka starfshlutfall sitt hjá Keili. Hann ætlar að snúa sér að smíðavinnu aftur, en verður innan handar með sértækar æfingar fyrir afreksmenn Keilis. Golfklúbbur Keilis þakkar Björgvini kærlega fyrir góða vinnu, sem hann hefir innleitt í þjálfun á vegum golfklúbbsins og óskar honum velfarnaðar á vettvangi sem hann þekkir mjög vel.

Heimild: Golfklúbburinn Keilir