Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2012 | 00:25

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn á 76 höggum á 2. hring Ruth´s Chris Tar Heel

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest keppir á Ruth´s Chris Tar Heel mótinu í Norður-Karólínu nú um helgina.

Þátttakendur í mótinu eru 96 frá 18 háskólum og keppt er á UNC Finley golfvellinum í Chapel Hill.

Ólafía Þórunn er samtals búin að spila á 150 höggum (74 76).

Hún er á besta skorinu af öllum í liði Wake Forest, sem er sem stendur 14. sæti í liðakeppninni.

Ólafía Þórunn fór úr 20. sæti í einstaklingskeppninni í 31. sætið, sem hún deilir með 4 öðrum.

Golf 1 óskar Ólafíu Þórunni góðs gengis!

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Ruth´s Chris Tar Heel mótsins SMELLIÐ HÉR: