Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, GA. Mynd: Í einkaeigu.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2012 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Stefanía Kristín hefur leik á Patsy Rendleman Inv. í dag

Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, klúbbmeistari og púttmeistari GA 2012 og í Lady Falcon golfliði Pfeiffer háskólans hefur leik á Patsy Rendleman Invitational í dag, en mótið fer fram í Salisburg, Norður-Karólínu.  Þetta er tveggja daga mót en leikið er dagana 15.-16. október 2012.

Spilað er í Country Club of Salisbury, á par-71 golfvelli klúbbsins, hönnuðum af Donald Ross. Sjá má heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR: 

Eftir þetta mót spilar Stefanía Kristín í Brevard mótinu n.k. laugardag og er það síðasta mótið sem hún spilar í, í haust með the Lady Falcons.

Golf 1 óskar Stefaníu Kristínu góðs gengis í mótinu!