Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2011 | 11:15

Fredrik Jacobson leiðir eftir 2. dag HSBC – Oosthuizen á vallarmeti 63 höggum!

Það er Svíinn Fredrik Jacobson, sem hefir tekið forystuna á HSBC heimsmótinu í Sheshan í Kína þegar mótið er hálfnað.  Hann er búinn að spila á samtals 133 höggum (67 66) þ.e. samtals -11 undir pari.  Öðru sætinu deila Louis Oosthuizen (71 63) risamótssigurvegari frá því í fyrra (Opna breska) og Adam Scott (69 65) aðeins höggi á eftir Jacobson.   Oosthuizen setti nýtt vallarmet í dag á Sheshan Alþjóða golfvellinum, spilaði á glæsilegum 63 höggum!  Oosthuizen spilaði skollafrítt og fékk 9 fugla á hringnum.

Til þess að sjá stöðuna á HSBC að öðru leyti eftir 2. dag smellið HÉR: