Ragna Björk Ólafsdóttir, GKG og golflið St. Leo
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 17. 2012 | 15:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragna Björk og St. Leo Lions luku leik í 4. sæti á St. Leo Inv.

Ragna Björk Ólafsdóttir, klúbbmeistari GKG 2012 og í golfliði St. Leo Lions lauk í gær keppni á St. Leo Invitational, í Flórída.

Mótið var 2 daga og fór fram dagana 15.-16. október  í  Lake Jovita Golf and Country Club. Sjá má heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR: 

Þátttakendur voru 76 frá 14 háskólum en auk St. Leo Lions, golfliðs Rögnu Bjarkar, tóku þátt 13 önnur háskólalið frá: Tampa, Eckerd, Florida Tech, Barry, Florida Southern, Florida Southern B, Flagler, Lynn, Columbus State, Mount Olive, Nova Southeastern, Webber International, and Johnson & Wales.

Ragna Björk spilaði samtals á 155 höggum (74 81) og lauk keppni í  19. sæti í einstaklingskeppninni, sem hún deildi með 2 öðrum. Ragna Björk var á 3.-4. besta skori St. Leo Lions og taldi skor hennar því.

St. Leo Lions, golflið Rögnu Bjarkar, lauk keppni í 4. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá úrslitin á St. Leo Invitational SMELLIÐ HÉR: