Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 09:30

Evróputúrinn: Boo Van Pelt sigraði í Perth

Það var Bandaríkjamaðurinn Boo Van Pelt sem sigraði á ISPS Handa Perth International nú fyrir skemmstu.  Van Pelt spilaði á samtals 16 undir pari, 272 höggum (70 67 67 68).  Hann spilaði lokahringinn af nokkru öryggi fékk 6 fugla og 2 skolla.

Tveimur höggum á eftir Van Pelt varð landi hans, Ryder Cup liðsmaðurinn 2012 Jason Dufner á samtals 14 undir pari, 274 höggum (71 67 67 69).

Spánverjinn Alejandro Cañizares varð síðan í 3. sæti á 11 undir pari 277 höggum (65 73 71 68). Í 4. sæti varð Nýsjálendingurinn Michael Hendry á samtals 9 undir pari.

Fimmta sætinu deildu síðan 5 kylfingar: Paul Casey, sem virðist vera að ná sér eftir snjóbrettaslysið, Emiliano Grillo frá Argentínu, Englendingurinn David Howell, Skotinn Scott Jamieson og Rhys Davies frá Wales.  Allir spiluðu þeir á samtals 8 undir pari, hver.

Til þess að sjá lokastöðuna í mótinu SMELLIÐ HÉR: