Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 11:00

Ernie Els skiptir um umboðsaðila

Ernie Els hefir skipt um umboðsskrifstofu í 2. skipti á litlu meira en 1 ári, en hann ætlar að græða á aukinni fjölmiðlaumfjöllunn í kjölfar sigurs síns á Opna breska á þessu ári.

Hinn 43 ára Els frá Suður-Afríku, er sífellt að færa út kvíarnar, en meðal þess sem hann fæst við eru m.a. góðgerðarmál, golfvallarhönnun og vínræktun.  Hann fór frá umboðsfyrirtæki sínu Pros Incorporated s.l. þriðjudag og gekk til liðs við IMG, þar sem fyrir eru kylfingar á borð við  Luke Donald, Sergio Garcia og Jason Dufner.

Els sneri aftur í kastljós fjölmiðla með sigri sínum á Royal Lytham & St Anne’s í júlí, þegar hann vann 4. risamótatitil sinn.

Um umboðsskrifstofu skiptin sagði hann að IMG „væri í raun best fallið til að hjálpa sér í öllu sem hann vildi gera á og utan vallar.“

Tiger Woods sleit samskiptum sínum til margra ára við IMG á síðasta ári.

Heimild: Independent Online