Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2012 | 20:00

Golfgrín á laugardegi

1. Guð og Lykla-Pétur spila saman golf. Guð fær að slá fyrsta höggið. Höggið er beint og fallegt og stefnir beint á fyrstu holuna. Fyrir framan holuna situr mús. Hún sér boltann og gleypir hann. Á sama augnabliki stekkur köttur fram og gleypir músina. Þetta sér örn sem svífur yfir vellinum, en hann steypir sér niður og grípur köttinn.  Skyndilega lýstur eldingu og rífur í sundur örninn og bráð hans. Golfboltinn fellur nákvæmlega í holuna. Þá segir Lykla-Pétur við Guð: „Er þetta djók eða erum við að spila golf?“

2. Hjón sem hafa verið gift í óratíma spila saman golf. Þegar þau koma á 18. holu á hún eftir 15 metra pútt fyrir erni. Hún: „Oh, ég myndi deyja, ef ég set þetta niður.“ Hann: „Elskan, þetta er gefið.“

3. Eiginmaðurinn: „Ég fékk golfkylfur fyrir konuna mína.“ Spilafélaginn: „Það voru góð skipti!“

4. Kylfingur slær bolta sínum í gjá. Hann stekkur eftir boltanum sínum og hverfur augum meðspilara síns. Í gjánni heyrist í höggi, höggi, höggi. Síðan endurtekur það sig og síðan aftur. Meðspilarinn þegar kylfingurinn prílar upp úr gjánni: „Jæja, voru þetta 9 högg?“  „Nei, þrjú, sex voru bergmál.“

5. Fjórir læknar spila saman golf á hverjum miðvikudagseftirmiðdegi og hittast nákvæmlega kl. 14:00. Jonni tilkynnir félögunum að hann verði að afboða, næsta miðvikudag sé silfurbrúðkaup hans og konan hafi beðið hann um að verða eftir heima.

Þegar klukkuna vantar nokkrar mínútur í tvö miðvikudaginn umrædda hringir síminn heima hjá Jonna. Pétur yfirlæknir: „Þú VERÐUR að koma, veðrið er æðislegt og án þín er þetta bara ekki það sama; Við stöndum hér allir þrír á fyrsta teig.“

Jonni við konuna sína: „Mér þykir svo fyrir þessu, ég bara verð að fara. Pétur yfirlæknir hringdi í mig og ég á að koma, þetta hlýtur að vera alvarlegt, þrír kollegar eru komnir á staðinn.“

6. Golfvinirnir eru við gröf spilafélaga síns.  Einn þeirra hendir flaggi ofan í gröfina.  Segja hinir tveir: „Hey, hvað í ósköpunum ertu að gera?“  Vinurinn: „Hann sagði alltaf að hann vildi að hann steinlægi við flaggið!“