Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2011 | 10:15

Tiger heldur blaðamannafund í dag – fyrsta sinn eftir kynþáttafordóma Steve Williams

Tiger Woods heldur fyrsta blaðamannafund sinn í dag, mánudag, þann fyrsta eftir að fyrrum kylfusveinn hans, Steve Williams varð með kynþáttafordóma í hans garð.

Það er óljóst hvort fyrrum nr. 1 á heimslistanum (Tiger Woods) muni tjá sig um málið á fundinum í Sydney (sem fara á fram kl. 11:30 að íslenskum tíma) en á dagskrá er að ræða Australian Open sem framundan er.

Ný-Sjálendingurinn Steve Williams lét ummælin falla um Tiger á kaddýkvöldi í Shanghai s.l. föstudag, en Steve var þá að bera kylfur fyrir Ástralann Adam Scott, á WGC-HSBC Champions mótinu, en hafði verið látinn taka pokann sinn hjá Tiger í júlí.

Þrátt fyrir að International Federation of PGA Tours  hafi látið fara frá sér fréttatilkynningu þar sem ummæli Steve Williams voru fordæmd sem „algerlega óásættanleg“ ætla hvorki samtökin né Adam Scott að refsa Williams.

Haft er eftir Adam Scott í Daily Telegraph í morgun: „Ég sé ekki að þetta verði mikið mál í framtíðinni. Frá mínum bæjardyrum séð og styrktaraðilum mínum er málið lagt til hvílu. Ég hef ekkert meira að segja um það við neinn. Þannig, ég held bara áfram.“

Annar Ástrali, Greg Norman, hefir líka varið Willimas.

„Steve er ekki kynþáttahatari,“ sagði Norman, sem hafði Steve Williams á pokanum hjá sér um tíma.

„Við segjum líklega öll einhverja vitleysu á vitlausum tímum. Því miður urðu vitleysisummæli hans alþjóðlegar fréttir. Ég veit að hann sér líklega eftir að hafa sagt þetta. En ég fullyrði að í þessu herbergi þetta kvöld voru eflaust þungbærari pillur sem fuku.“

Heimild: Sky Sports