Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Davíð Gunnlaugsson – 7. nóvember 2011

Það er Davíð Gunnlaugsson, GKJ, sem er afmæliskylfingur dagsins. Davíð er fæddur 7. nóvember 1988 og er því 23 ára í dag. Davíð á 3 systkini, Andra 12 ára, Björgu 20 ára og Eydísi 29 ára, en ekkert af þeim er í golfi. Hins vegar er kærasta Davíðs, Heiða Guðnadóttir, GKJ, landsþekktur kylfingur.  Davíð byrjaði 11 ára á golfnámskeiði hjá GKJ.  Meðal margra afreka Davíðs í golfíþróttinni er t.d. að verða Íslandsmeistari í sveitakeppni 16-18 ára, árið 2005. Davíð starfar sem aðstoðarþjálfari hjá GKJ, en er í lögfræði í Háskóla Íslands á veturna. Í viðtali við Davíð, sem birtist hér síðar á Golf1 sagði hann aðspurður að markmiðið í lífinu hjá sér væri: „Að halda áfram í golfi, eignast fjöskyldu, verða gamall og hafa gaman af lífinu.”

Golf 1 vonar að öll markmið Davíðs rætist og óskar honum, sem og öðrum  afmæliskylfingum innilega til hamingju með afmælið!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Hallgrímur Friðfinnsson, GK, f. 7. nóvember 1943 (68 ára); Kristín Höskuldsdóttir, 7. nóvember 1960; Felipe Aguilar Schuller, f. 7. nóvember 1974 (37 ára);

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is