NGA: Alexander komst ekki í gegnum niðurskurð í Southern Dunes mótinu
Alexander Gylfason tók þátt í 5. móti NGA Pro Golf Tour – Bridgestone Winter Series, en leikið var Southern Dunes Golf & CC í Haines City í Flórída.
Mótið stendur dagana 27.-29. nóvember og var skorið niður í gær eftir seinni dag mótsins og komust 36. efstu og þeir sem jafnir voru í 36. sætinu áfram í lokaumferðina.
Alexander Gylfason komst því miður ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni.
Hann lék á samtas 24 yfir pari, 168 höggum (81 87) og var nokkuð mörgum höggum frá því að ná niðurskurði.
Í efsta sæti eftir 2 hringi eru heimamaðurinn James Vargas, frá Miami (68 68) og Ryan Brehm frá Michigan (67 69), báðir 8 undir pari.
Næsta mót á NGA Pro Golf Tour – Bridgestone Winter Series verður í Shingle Creek Resort dagana 4.-6. desember n.k.
Til þess að sjá stöðuna í Southern Dunes SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024