LET: Tinna á 74 höggum á 3. degi í Lalla Aïcha Tour School 2013
Tinna Jóhannsdóttir, atvinnumaður úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði lék á 74 höggum á 3. degi Lalla Aïcha Tour School 2013 í dag, en mótið fer fram í Amelkis Golf Club & Al Maaden Golf Resort í Marrakech, í Marokkó.
B-riðillinn, sem Tinna leikur í spilaði á Amelkis golfvellinum, sem reynst hefir Tinnu erfiðari, þannig að það er gott að hún að Al Maaden eftir á morgun!
Samtals er Tinna búin að spila á 4 yfir pari, 220 höggum (74 72 74) og er í 42. sæti.
Frænka Tiger Woods, Cheyenne Woods, sem líka spilar í úrtökumótinu skaust upp fyrir Tinnu í dag og er komin í 30. sæti eftir frábæran hring upp á 69 högg, en var í 44. sætinu í gær. Það munar aðeins 3 höggum á þeim og vonandi að Tinna eigi frábæran hring á morgun – það þarf oft svo lítið til þess að skjótast upp skortöfluna.
Golf 1 óskar Tinnu góðs gengis á morgun!!!
Til þess að sjá stöðuna í B-riðli Lalla Aïcha Tour School 2013 í Marokkó eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024