LET: Tinna á 76 höggum á 4. degi í Lalla Aïcha Tour School 2013
Tinna Jóhannsdóttir, atvinnumaður úr Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði, tekur um þessar mundir þátt í úrtökumóti fyrir LET í Marokkó, Lalla Aïcha Tour School 2013.
Hún lék á 76 höggum á 4. degi mótsins en mótið fer fram í Amelkis Golf Club & Al Maaden Golf Resort í Marrakech, í Marokkó.
B-riðillinn, sem Tinna leikur í spilaði á Al Maaden golfvellinum í dag.
Samtals er Tinna búin að spila á 8 yfir pari, 296 höggum (74 72 74 76) og er sem stendur í 50. sæti þ.e. fór niður um 8 sæti frá því í gær. Sætisröðun gæti þó enn raskast eitthvað því nokkrar eiga eftir að skila sér í hús í B-riðlinum.
Frænka Tiger Woods, Cheyenne Woods, sem líka spilar í úrtökumótinu er sem stendur í 24. sætinu, spilaði á 1 undir pari, 287 höggum (74 74 69 70).
Þær sem berjast um efsta sætið í B-riðli eru „heimakonan“ Maha Haddoui og enska stúlkan Holly Clyburn. Báðar eru hnífjafnar á 14 undir pari samtals, en eiga eftir að spila 4 holur þegar þetta er ritað.
Til þess að sjá stöðuna í B-riðli Lalla Aïcha Tour School 2013 í Marokkó eftir 4. dag SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024