Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Michael Jonzon (11. grein af 28)
Næstir í röðinni af þeim sem kynntir verða hér eru þeir 4 eða réttara sagt 3 sem urðu í 16. sæti í lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór í Girona, á Spáni 24. -29. nóvember 2012. Einn af þeim sem varð í 16. sæti hefir þegar verið kynntur þ.e. Daninn Morten Örum Madsen sem náði þeim frábæra árangri að verða T-4 á 1. móti sínu á Evrópumótaröðinni 3 dögum eftir að hann lauk keppni í Q-school, þ.e. á Nelson Mandela Championship í Suður-Afríku.
Hinir 3 sem urðu í 16. sæti í Q-school voru Chris Lloyd, Michael Jonzon og David Higgins.
Við byrjum að kynna Michael Jonzon. Michael fæddist 21. apríl 1972 í Skara í Svíþjóð og er því 40 ára. Hann gerðist atvinnumaður árið 1991 og hefir varið mestum hluta ferils síns á Evrópumótaröðinni og Áskorendamótaröðinni. Sem atvinnumaður á hann að baki 8 sigra þar af tvo á Evrópumótaröðinni þ.e. hann vann 1997 Portuguese Open og árið 2009 á Castelló Masters í Costa Azahar.
Eins hefir Jonzon sigrað 2. sinnum á Áskorendamótaröðinni 2003 þ.e. í Galleria Kaufhof Pokal Challenge og í Rolex Trophy. Eins á hann að baki 3 sigra á Swedish Mini Tour og einn í Frakklandi 1997 þ.e. á Open Novotel Perrier.
Michael Jonzon spilar 2013 aftur með full keppnisréttindi og kortið sitt á Evrópumótaröðinni, sem sýnir að allt er fertugum fært í sportinu okkar, golfinu!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024