Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2012 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Taylore Karle (9. grein af 27)

Taylore Karle fæddist 26. júní 1990 í Plano, Texas og er því 22 ára. Hún er dóttir  Richard og Tonnie Karle og á eldri bróður, Austyn, sem var eins og systir hans  4 ár í golfliði Pepperdine University.

Taylore er frábær klassískur píanisti og meðal áhugamála hennar eru píanóið, að lesa og ljósmyndun. Uppáhaldsgolfvöllur hennar er North Berwick í Skotlandi. Uppáhaldsbækurnar eru biblían og  Twilight series. Uppáhaldskvikmyndirnar eru Cinderella Man og  Driven. Uppáhaldssjónvarpsþættirnir eru Seinfeld og True Blood. Uppáhaldstónlistarmenn eru: Sting, Colbie Caillat og Queen. Uppáhaldsíþrótt önnur en golf er hokkí. Það sem henni finnst best við golfið er að „það reynir á alla þætti þína eins og karakter og hegðun og maður kemur alltaf til að fá meira af því (golfinu).“

Helstu afrek Karle á golfsviðinu eru eftirfarandi:

– Hún var þrisvar sinnum AJGA Rolex Junior All-American First Team selection (2005-2007).
– Karle vann höggleikinn á U.S. Girls’ Junior Championship, árið 2005.
– Taylore Karle keppti á U.S. Women’s Open Championship, árið 2006.
– Karle sigraði á Silverbelle Amateur Championship, 2007.
– Taylore Karle var útnefnd West Coast Conference leikmaður ársins meðan hún var enn í Pepperdine University, 2008
– Duramed NGCA All-American Second Team selection, árið 2008.
– Taylore Karle útskrifaðist frá Pepperdine í auglýsinga- og markaðsfræðum 2011 og komst strax og spilaði á Futures Tour (nú Symetra Tour).

Sjá má nýlegt viðtal blaðafulltrúa Symetra Tour við Taylore með því að SMELLA HÉR: