Evrópa leiðir í Royal Trophy
Lið Evrópu og Asíu hófu í dag keppni um Royal Trophy í Brunei. Eftir daginn leiðir lið Evrópu með 3 1/2 vinning gegn 1/2 vinningi liðs Asíu.
Stjörnur dagsins voru sænski kylfingurinn Henrik Stenson og Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castaño, sem voru 8 undir pari og unnu Ryo Ishikawa frá Japan og Bae Sang-moon frá Suður-Kóreu 5 & 4.
Ítölsku bræðurnir Edoardo og Francesco Molinari unnu leik sinn gegn Ashun Wu frá Kína og Yoshinori Fujimoto frá Japan 2 & 1, og Þjóðverjinn Marcel Siem og Belginn Nicolas Colsaerts báru sigurorð af Indverjanum Jeev Milkha Singh og Kiradech Aphibarnrat frá Thailandi á lokaflötinni.
Svo virtist sem um algert burst væri að ræða þar til spilandi fyrirliðinn José Maria Olázabal og landi hans Miguel Ángel Jiménez urðu að sætta sig við að skilj jafnir gegn Y E Yang og K T Kim frá Suður-Kóreu.
Leikar halda áfram í fjórbolta á morgun og tvímenningi á sunnudaginn.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024